Margrét Pálsdóttir

Crazyness in the brainhouse

20.10.2008 14:57:26 / margret

MYNDIR!

Jæja búin að setja inn tvö ný albúm á myndasvæði bloggsins! Annað albúmið er djamm heima hjá Ingó þar sem nokkrir úr vinnunni mættu. Var allavega mjög skemmtilegt! Svo er hitt albúmið frá afmæli Ernu Rósu og svo nokkrar af mér og Bergrúnu á djamminu. Duttum vel í það á laugardaginn ho ho ho...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 21:41:43 / margret

Yfirlit um mig...hmmm..

Jæja Gyða gjörðu svo vel! :)

1. 4 störf sem ég hef unnið um ævina:
- Stuðningsfulltrúi
- Já 118
- Ms -rífa ost
- Skúra hjá HSA

2. 4 bíómyndir sem ég held uppá:
- Shoot em up
- Waterworld
- Fifth element
- Leon

3. 4 staðir sem ég hef búið á:
- Reyðarfirði
- Garði, Eiðum
- Totnes,Englandi
- Höfðatúni 5, Rvk

4. 4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Top Gear
- Everwood
- Top model
- CSI
5. 4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Króatía
- Feneyjar,Ítalíu
- Svíþjóð
- Danmörk

6. 4 síður sem ég skoða daglega:
- www.facebook.com
www.blog.central.is/magga84
- www.einkabanki.is
- www.vedur.is
7. fernnt matarkyns sem ég held uppá:
- Pizza
- Brauðstangir (aðallega söluskála-sammála Gyðu)
- tælenskir/kínverskir réttir
- pasta með steiktu grænmeti og baconi..

8. 4 bækur/blöð sem ég held mikið uppá/les oft:
- Lifandi vísindi
- Flest með Arnaldi...
- Aska
- Bibían (hehehe, nei)

9. 4 staðir sem ég vildi vera á núna:
- Á austurlandi
- Með öllum vinum mínum á sama tíma að drekka öl!
- Í kraumandi heitum pott með Mána..
- Á sólarströnd að slaka á í hitanum...

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 12:17:02 / margret

streptókokkar...pffff

  Er nú þriðja daginn minn heima veik með streptókokka. Annað sinn á ævi minni sem það gerist og þá seinast fyrir 2-3 mánuðum. En það þýðir ekkert að væla yfir því.....Helgin mun þvi einkennast af engri drykkju og ætli ég verði ekki bara driver á föstudag og skelli mér til keflavíkur. En það kemur síðar í ljós.
  Það er einhver íkveikjufaraldur í gangi hér í rvk borg. Kveikt í nokkrum bílum í borgartúni um nótt...Ég og Máni búum rétt hjá, NENNI ekki að einhver hálfviti komi og kveiki í okkar bíl! Það yrði afar óþægilegt!!!!
  Á döfinni hjá mér er svo bara ekki neitt, vinna, vinna, vinna og já svo bara vinna......en framtíðarpæling er að skella sér í HÍ eftir áramót og fara í rússnesku... Á erfitt með að læra ekkert...............!!!!!! ;) Bless í bili.........(stóru bili)

Ps. myndir úr kveðju partý Fríðu inn á blogginu mínu undir flokknum, Myndasöfn!

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 02:37:43 / margret

Hvað er gult, gott en hættulegt????

Svarið við þeirri spurningu kemur í ljós eftir 3 ár! 
Kellan skellti sér á útitónleika Bjarkar og Sigur Rósar í kvöld. Gríðarlegur stemmari og ekki vantaði fólkið. Get ekki sagt að ég sé Sigur Rósar fan en reyndar heldur ekki Bjarkar fan en djöfull var hún að gera góða hluti. Barasta töff tónlist hjá gömlu gömlu ;) Já svo er mar að fara austur 4. júlí. Kíkja á toffærukeppni og slaka á í 3 vikur....það er hið ljúfa líf! Slaka á í sveitinni með rollum og hænum, er hægt að biðja um eitthvað betra?? NEI! En hér með óska ég eftir gefins eða 1000 kr ísskáp sem að má ekki vera of lítill fyrir dverg að stærð en helst í hæð samanlagt tveggja dverga. Er sumsé að reyna innleiða það að menn noti mælieininguna dverg í meira mæli.     mm-cm-m-dverg-   T.d er bíllinn minn 10 dverga bíll, þó 5 belti en það eru bara tveir saman með eitt... Voða nettir sko! Já var búin að gleyma ísskápsauglýsingunni. Þarf ísskáp, sumsé ekki skáp með ís í...það yrði bara asnalegt heldur ísskáp tveggja dverga og já hljóðlaus...Þannið að óska eftir ísskáp í tveggja mállausra dverga stærð. og hananúuuuuuuuuuuuuuuuu... En svo það sem ég er búin að gera síðastliðnar vikur;
- fara í húsdýragarðinn...2x
- fara í sund
- fara í fjöruferð
- fara í vatnsslag
- fara til Viðeyjar í fyrsta sinn,jeaj!
- læra að búa til pappírsbát
- fá mér nýjan síma hjá Nova...
- fara á fyllerí, ágætlega dugleg í því(nema í kvöld vegna þynnku)
- skrúbba klósettið
Já búið að vera gaman í vinnunni og svona ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 19:03:43 / margret

Vinna það er eitthvað minna ;)

Já sæll! Jæja plan sumarsins er svo að ég er búin að fá staðfest að ég fái vinnu sem starfsmaður ÍTR við sumarnámskeið. Innifalið í því er frí mestallan júlí þannig að þá ætla ég austur og gæta dýra á garði ( ekki á dýragarði,doh),djamma og liggja í sólbaði ahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh.............er mjög spennt fyrir þessu sumari. Ég og Máni ætlum að festa kaup á stórglæsilegu kolagrilli þannig að grill grill grilllllllllllllllllll ;) Hvað meira, já hef held ég komist að þeirri niðurstöðu að ég komist ekki inn í LHÍ þar sem ég hef enn ekki verið boðuð í viðtal.........ÞV'IMIÐUR!!! Það eru einu leiðindi lífs míns sem stendur þannig læt mig hafa það ;) en já þar sem sumarið er ekki komið hér í rvk alveg bara rigning í dag ætla ég í ljós múhahahha.............Bææææææææææææ

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 23:28:23 / margret

sumar mig langar í humar...mmmm

Skólinn er víst að verða búinn og maður er að vinna í sínum allra síðustu verkefnum. Farinn að hlakka til sumarsins þó ég viti nú ekki alveg hvað það mun hafa í för með sér. Vænti símtals frá Listaháskólanum í apríl þar sem mér verður boðin vist í skólanum næsta haust en ég endurtek vænti. Ef það gerist ekki þá eru leiðir mínar mjög opnar fyrir næsta árið ekki endilega mjög spennt fyrir því. Er búin að sækja um vinnu fyrir sumarið og bíð spennt svara. Gæti orðið gæslumanneskja fyrir krakka hjá ítr, sundlaugarvörður í laugardalslaug (þarf samt að standast einhverskonar próf- sundpróf hmm) þannig að er eiginlega búin að strika það út haha og svo að lokum er það aðstoðarmaður dýrahirðis í fjölskyldu- og húsdýragarðinum... það finnst mér hljóma skemmtilegast....en þá er bara að bíða og sjá.....verður skrítið að vera i reykjavík yfir sumartímann......
blesssssssssssssssssss

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 16:26:20 / margret

Always Coca Cola

 

   Í rúm 60 ár hefur Coca-Cola verið uppáhalds gosdrykkur Íslendinga.
Coca-Cola samanstendur af þykkni (þykkur vökvi sem kemur á brúsum frá The Coca-Cola Company og er kallað „concentrate“) sem er blandað sírópi (vatn og sykur) og loks er kolsýru blandað í herlegheitin til að gera hið eina sanna Coca-Cola.                      
  Coca-Cola kom til landsins með bandarískum hermönnum í seinni heimstyrjöldinni.
Það hafði vaxið stöðugt í vinsældum í Bandaríkjunum frá því að drykkurinn var fyrst framleiddur þar 1886.
Árið 1942 varð Ísland á meðal fyrstu landa í Evrópu þar sem drykknum var tappað á flöskur.
 

  Coke er því miður uppáhalds drykkur minn. Þrátt fyrir óhollustu hans...En er maður nokkuð verri maður við að fá sér eitt glas af kóki suma morgna í stað kaffis??? En held að fyrir veika huga eins og minn greinilega er, ætti einhver að bjóða upp á meðferðarúrræði, kannski mótefni.....?? 
              

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 21:44:08 / margret

Já já já já já....

Heitasta umræðuefni þessa daganna er eurovision og má ég því til með að koma með smá færslu um það því ég elska eurovision ;) Þar sem ég er nú helvítis blendingur get ég haldið annað hvort með Íslandi eða Króatíu. Þar sem að yfirleitt og það bregst oftast ekki eru króatísku eurovision lögin AFAR tæp á gæðum! Er reyndar ekki buin að heyra úrslita lag Króata en er svartsýn á það og styð því bara ÍSLAND!!! Annars eru framundan í skólanum öðruvísi dagar og er margt í boði. Ég og Edda ætlum að sameina krafta okkar og kíkja á nokkur námskeið og atburði. Vonandi þá að horfa á Jón Gnarr leika einhverja vitleysu sem verður örugglega afar fyndinn og svo förum við kannski í námskeið til að læra skrautskrift... Er ekki góð í að skrifa fallega þannig að gott að geta kannski bætt sig ;) Fer svo í langt páskafrí frá 15 mars - 26 mars. Svo er skólinn búinn hjá mér 26 apríl. Já, tíminn líður hratt á gervihnatta öld....úhúh hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld. Ertu stundum uggandi yfir öllum gulu miðunum, þú tekur kannski of mikið út af gleðibankanum.... já úps missti mig aðeins þarna hoho ;) Verððððððððððððð að kommenta á það því að það böggar mig óstjórnlega hvað stúlkukindin í mercedes club söng fokkin ILLLLLLLLLAAAAAAAAAAAAAAAAAA og FALLLLSSSSSSSSKKKKKTTTT! shit shit shit shit shit.... Þessar brúnu kúkaklessur (hnakkar) finnst mér einnig vibbar !!!!!! Jæja en örugglega bestu skinn inn við beinið... hmmmmmmmmmmm... Jæja já eins og margur maður veit sem er með facebook er ég orðin hooked. Það er eitthvað sem dregur mig í átt að tölvunni til að kíkja hvort einhver sendi skemmtilega könnun eða að einhver skemmtilegur vildi vera vinur minn... Hljómar svaðalega leiðinlega og tilgangslaust þegar ég segi það og skrifa en er samt bara skemmtilegt! ;) En sjáumst og áfram Ísland !!

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 10:48:43 / margret

Djamm djamm og aftur djamm

Jæja myndir eru komnar inn af mjög skemmtilegri helgi. Gyða kellan kom í bæinn og var gaman að fá hana í heimsókn. Á föstudaginn var matur í boði Evu og Ernu, namminamm var það gott. Svo var bara drukkið og drukkið og farið snemma í bæinn. Fundum okkur ekki alveg á neinum sérstökum bar þannig að gerðum mikið af því að ráfa á milli staða. sEm var bara dejlight. Laugardaginn for ég og Máni á árshátíð Eimskips. Var þar um 1070 manns og sátum við með bláókunnugu fólki. Skemmtiatriðin voru snilld og svo kom Jónsi og tryllti hóusið....hahahammm... Við yfirgáfum staðin stuttu eftir það og fórum heim. Ég hitti svo Evu, Ernu og Gyðu og við fórum saman niðrí bæ um hálf 4.. Sem er svoldið seint fyrir austfirðing eins og mig. En tjúttuðum og dönsuðum mikið á Sólon. Svo eftir langa bið í taxaröðini.. LANGA LANGA og KALDA bið komumst við heim tæplega hálf 7. GAMAN að því. Þannig að þetta var hrakfallalaus helgi og skemmtileg í alla staði. Tjahh fórum í seina bíóferð á sunnudaginn í þynnkunni á Sweeny Todd. Veit ekki alveg álit mitt á henni. Er ágætis svolítið væmin söng mynd með Johny depp..hmmm og mikið af blóðsúthellingum. Hann syngur bara vel kallinn, ef það er þá hann að syngja ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 18:53:51 / margret

dararamm díri díri....

Þorrinn nálgast óðfluga og lítur allt út fyrir að þetta árið verður ekki farið á gott sveitamanna þorrablót. Í stað þess ætlum við Máni að kaupa allskyns (ó;)geðsmeti. Dass af súru og dass af úldnu. Hef þróað mér þann "hæfileika" að geta borða súran PUNG, hákarl og svo allt hitt sem er semsagt ekki "ógeðslegt" Það sem hefur samt drifið á daga mína er að ég er komin með vinnu á frístundaheimili fyrir 6-9 ára krakka. Mjög skemmtilegt djobb! Ótrúleg orka í þessum aldurshópi get ég sagt ykkur. Annars bara skólinn á fullu.  Fríða og ég ætlum að taka mega tjútt ´föstudaginn er mjög spennt. Ég og Máni áttum 5 ára afmæli í gær og ætlum því að fagna um helgina með fínlegheitum á restaurant. Mjög rómó ;) Svo hafa verið pælingar hjá mér varðandi rétthend og örfentleika í minn garð. Ætli maður geti verið samhentur?!? Er semsagt rétthent í skriflegu eðli. En við aðrar athafnir s.s að móta eitthvað úr leir, opna kókflösku þá nota ég vinstri. jæja ég er mongó ætli það se ekki niðurstaðan ;) En ætla nú að leggja lokahönd á kvöldmatinn. Veriði sæl, ekkert æl og kem um hæl! ;) Góða helgi!

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 19:12:29 / margret

Nýtt ár....

Jólin búin , nýja árið komið og ég byrjuð í skóla og allt er hið ljúfasta. Það var mikið étið og djammað á Egilsstöðum um jól og áramótin. En finnst samt gott að vera komin "heim" til Reykjavíkur i litlu íbúðina! Í gær fórum við Máni í innflutningspartý til Þorra og Kristínar og var það mikið stuð. Nenntum svo ekki niðrí bæ þar sem að það var orðið svo áliðið. En já mjög gaman að hitta allt þetta gamla pakk aftur ;) Held að þetta blessaða nýja ár 2008 verði bara mjög skemmtilegt. Vonandi finn ég mér einhverja skemmtilega vinnu og svo held ég að það verði skemmtilegt í skólanum. Ætla að nörrast soldið í allskyns tölvuáföngum, s.s. Autocad, Flash, Illistrator og Photoshop........Er að setja inn myndir eftir 1 mín þannig að endilega skoðið djamm myndir frá Egs og úr innflutningspartýinu...

Sjáumst! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 15:26:11 / margret

EGILSSTAÐIR!!!!!!!!!!

Ógeðslega gaman að vera komin heim í Egs. Enda búin að hitta mitt fríða föruneyti. Semsé stelpurnar, tinnu,hebu, gyðu og meirað segja ásu. Fimmtudagurinn fór í smá rúnt og svo á nielsen og fengið sér einn kaldann.mmmm.... Svo inn á milli er mar búin að vera á Eiðum mestmegnis að þykjast vera hjálpsamur og þó vonandi gera eitthvað gagn. Þó ekki nema vera andlegur stuðningur við tiltekt ;) Svo var tjúttað á laugardaginn heima hjá Tinnu. Þar mættu heba og Ása og var gaman að rifja upp gamla og nýja tíma. Tinna var hugrökk og var búin að biðja kurteisislega um leyfi fyrir teitinu þar sem að konan fyrir ofan er snaróð beygla. En svona er fólk.... beyglur. Svo örkuðum við um 12 leytið niðrí valaskjálf eins og beljur á svelli bókstaflega. Minnir allavega að Ása hafi gjörsamlega hrunið niður. Svo var bara svaða stuð í valaskjálf. Mættu mjög margir, hefði mátt halda að um jólaball hefði verið að ræða. En tónlistin hefði mátt vera betri. En ætla ekki að kveina neitt meir yfir því. Vonandi verður svo gyða með okkur á næsta djammi. Vonandi eitthvað að gerast annan í jólum í þessum guðblessaða bæ okkar. En bless í bili og næstum því gleðileg jól ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 21:44:32 / margret

Gayness....

Ákvað að lífga upp á svarta og dimma bloggið mitt með þessari JÓLAGLEÐI!!!!! Þar sem að prófin hjá mér eru búin og gekk bara aldeilis ágætlega í þeim. Nú er semsagt jólafríið tekið við sem er mjög ljúft! Fer heim vonandi ef veður leyfir 12.desember. JIBBÝ. Annars hefur ekki mikið gengið á hjá mér. Búin að troða í mig piparkökum, meira að segja jólaköku mmmmmmmmmmmmmmmmmmm..... Er núna að glápa á fóstbræður, ógeðslega fyndið.

Í dag fékk ég að vita og ennfremur staðfesta getu(vangetu) mína til ritgerðaskrifa. Fékk 6 í einkunn. En bjóst nú ekki við hærri einkunn og því ekki fyrir vonbrigðum sem er bara jákvætt. Alltaf gott að líta á jákvæðu hliðarnar ;)  Er búin að setja mér smá markmið um jólin og það er að læra að búa til góða ostaköku. Móðir mín á að taka að sér það starf, hún veit bara enn ekki af því....En til að kvarta nú eitthvað, má ekki sleppa því. AFHVERJU eru ekki fleiri jólalög spiluð í útvarpinu en gengur og gerist? Á ekki neina jóladiska....prump.

Talandi um prump..hahahhahahha. Eins og gengur og gerist vaknaði ég við hlið Mána einn "fagran" morgunn. Þó var hann eigi svo fagur eftir því sem kom svo. Ég var hálfsofandi þegar að Máni tekur upp á þig að reka við. Brást ég við þeim óhljóðum sem að hann væri að segja eitthvað við mig. Aftur prumpaði hann og enn aftur rumskaði ég "Ha, hvað ertu að segja?" Mætti því segja að ég og rassinn á Mána áttum í innilegum og hlýjum samræðum umræddan morgun.

Er óviðeigandi að tala um prump? Nú veit ég ekki. Stundum held ég að ég hafi ekki alveg þessa kurteisislegu siðferðiskennd til að sleppa því að tala um prump, piss og svo framvegis ef mig langar til þess. Fær einhver leið á kúk og piss bröndurunum? Nei, hélt ekki ;) Jæja ætla að eta eitthvað og svo kannski bara prumpa í tilefni umræðna hoho bæjó

kv. Magga Prump

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 13:47:50 / margret

ótreystandi...

Jæja tveimur bloggfærslum síðar. Semsagt er búin að blogga tvisvar og í bæði skiptin hafa þau ekki vistast. Glatað dæmi. Ætla því að reyna aftur þó að áhuginn fyrir því er tvímælalaust mjög lítill. Helgin fór í að vera bara mjög edrú og er ég nú farin að þrá að komast á almennilegt fyllerí. Virðist enginn hafa tíma fyrir svoleiðis þessa dagana. Páll Óskar dj aðist á laugardeginum og hvar var ég, já ég var heima að spila popppúnkt með Mána. Kvarta nú ekki yfir þeim notalegheitum en PÁLL ÓSKAR. Persónulega þykir mér ekkir ykja merkilegt við nyju lögin hans, gömlu eru alltaf góð. En svona er þetta bara ég bíð bara eftir að Palli spili aftur. Sunnudagskveldið var mjög ljúft, þar sem að við Máni elduðum fínasta lambalæri í fyrsta sinn og heppnaðist það 100% ,ótrúlegt enn satt. Buðum Stínu og Brósa í mat og var það mjög jólalegt kvöld með jólaöli og piparkökum eftir á.En talandi ekki um veðrið hefur snjórinn enn ekki latið sjá sig í höfuðborg rigningarinnar og bíð ég enn spennt eftir snjónum. Veðurfréttir spá um frost á morgun og jafnvel snjókomu um helgina, vonum nú að veðurfræðingarnir hafi rétt fyrir sér, svona bara einu sinni fyrir mig! Í dag var hinsvegar hlýtt og rigningarlaust og röltum við úr hönnunarsögunni í Kjarlvalsstaði að skoða sýningu um íslenska byggingarlist. Erfitt að halda einbeitni í að hlusta á einhvern tala í 1 og hálfan tíma um það en það hafðist. Nú er ég bara kominn upp í rúm og klukkan aðeins 13:45, búin að fá mér hollan hádegisverð og er bara afspyrnu löt núna. Þarf samt að gera eitthvað....þegar ég nenni. Hef frétt að Valaskjálf verði bara draugabæli hvað varðar böll og drykkju. Þannig að er pínu vonsvikin en það verður samt yndislegt að eyða jólafríinu á austurlandinu. Svo bara rífum við upp kraftgallana og vodkað og förum á götufyllerí eins og í gamla gamla gamla gamla daga ;) Það var alltaf stuð... En kveð að sinni. Bæ.

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 19:48:02 / margret

Myndir...

Yo yo yo bitchas and da hoes! Við Máni héldum innflutningsteiti seinasta laugardag, betra seint en aldrei! Heppnaðist gríðarlega vel fyrir utan smá svona vesen sem fylgir partýum og óþrifnaðurinn. OJ OJ OJ ;) En já þakka öllum fyrir komuna, klósettpappírinn og kakóbollana! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 26064